Ráðgjöf og eftirlit

Það er að mörgu að huga við byggingarverkefni hvort sem það er stórt eða smátt. Velja þarf hagstæða byggingaraðferð og leitast við að tryggja að áætlanir séu raunhæfar. Lykilatriði er að eftirlit með framkvæmdum sé virkt allan byggingartímann.
Þannig sparast bæði tími og peningar. Hvaðan sem þú kaupir húsið þitt – fáðu okkur til að halda utan um þitt verkefni.

Byggingareftirlit og verkefnastjórnun.

Alhliða utanumhald verkefna, frá hugmynd að fullbúnu húsi.

Áætlanir, útboðsgerð og kostnaðareftirlit.

Verkáætlanir, gerð útboðsgagna, öflun tilboða og kostnaðareftirlit.

Einingahús og módúlar.

Ráðgjöf við kaup og byggingu á einingahúsum og módúlum.

Samningagerð á sviði fasteignaviðskipta.

Þjónusta löggilts fasteignasala. Verðmöt, ráðgjöf og öll skjalagerð.

Verkefnastjórnun, frá A-Ö

Fyrir utan að vera kostnaðarsamar, eru flestar byggingarframkvæmdir flóknar og þarfnast mikillar og stöðugrar yfirsýnar – að haldið sé í marga enda á hverjum tíma. Þar kemur reynsla okkar að góðum notum.

Hvort sem framkvæmdin er á okkar vegum eða ekki, þá bjóðumst við til að halda utanum allt ferlið, frá því á hönnunarstigi og allt til loka. Aðkoma okkar að þessu ferli er háð stærð, staðsetningu og umfangi verkefnisins, og alltaf unnin í samráði við verkkaupa.

Verkefnastýring er oftast unnin í tímavinnu, eða sem hlutfall af byggingarkostnaði – útfærsla er þó alltaf samkvæmt nánara samkomulagi við verkkaupa.

Verkáætlanir, útboðsgerð og kostnaðareftirlit

Í upphafi skyldi endinn skoða. Hvort sem verkefnið er lítið eða stórt, er mikilvægt að áætlun liggi fyrir í upphafi og að stöðug rýni sé á hvernig gengur að halda kostnaði innan þeirra marka sem lagt var upp með.

  • Við gerum verk- og kostnaðaráætun fyrir bygginguna þína útfrá þeim forsendum sem fyrir liggja varðandi byggingargerð og aðstæður á byggingarstað. Einnig getum við áætlað allan kostnað upp að fullbúinni byggingu, þar með talið allar innréttingar og húsbúnaður.

  • Við gerum framvinduskýrslur og berum saman við upphaflega áætlun. Þannig er hægt að bregðast hratt við ef fram koma frávik. Með virku kostnaðareftirliti verður verður verkefnið hagkvæmara.

  • Gerð útboðsgagna og öflun tilboða hjá undirverktökum er hluti af þessari þjónustu, allt eftir samkomulagi við verkkaupa.

timburhús - hvað er best ?

Timburhús eru mjög vistvænn kostur þegar kemur að því að velja byggingaraðferð. Ívera í timburhúsum þykir yfirleitt betri en í steyptum byggingum og kolefnissporið er verulega minna. Byggingarhraði timburbygginga er oftast talsvert meiri en hefðbundinna steyptra húsa.

Í boði eru fjölmargar aðferðir við að byggja timburhús. Byggt á áralangri reynslu okkar, getum við ráðlagt um hvers konar hús við teljum hagkvæmust í þínu tilfelli. Það á ekki einungis við um einbýlishús eða frístundahús, heldur einnig fjölbýli; raðhús, parhús og 2ja og 3ja hæð hús, þar sem arkitekta- og verkfræðihönnun skiptir verulegu máli.

Fjölmargt er einnig í boði þegar kemur að efnisvali, hvort heldur sem eru utanhússklæðningar, gluggar, eða innanhússfrágangur. Mikill munur getur verið á efnisgæðum, þó verðmunur sé ekki verulegur. Því þarf að skoða vel hvað hentar hverju sinni – heyrðu í okkur til að ræða málin.

Fasteignaviðskipti - samningar

Við bjóðum alla almenna þjónustu við fasteignaviðskipti.

  • Verðmat fasteigna; um allt land.
  • Sölumeðferð fasteigna; íbúðir, frístundahús, lóðir, jarðir.
  • Kaup; samningagerð, hagsmunagæsla.
  • Afsalsgerð.
  • Almenn samningagerð í fasteignaviðskiptum eða verktakasamningum.
  • 3D- og drónamyndir af fasteignum – fyrir verðmat eða sölumeðferð.


Hjá JARÐHÚS starfar löggiltur fasteignasali, meðlimur í félagi fasteignasala, með yfir tíu ára reynslu af fasteignaviðskiptum. Mikil reynsla af sölu nýbygginga og af fasteignaviðskiptum

um allt land.