JARÐHÚS - STEYPTAR EININGAR
Forsteyptar einingar (módúlar) sem gufubað, geymsla eða einstaklega sjarmerandi gestahús, lítið sumarhús eða útleigueining sem á engan sinn líka. Módúlarnir eru grafnir inn í landslagið, huldir jarðvegi, þannig að þeir hverfa inn í umhverfið. Frá flestum sjónarhornum verður ómögulegt að sjá að þarna sé glæsilegt gistirými. Einingarnar koma innréttaðir og tilbúnir til notkunar frá framleiðanda.
Aðeins þarf örfáa daga til að koma einingunum fyrir og ganga frá lagnatengingum. Þar sem módúlarnir koma með steyptu gólfi er sökklavinna óveruleg. Mjög spennandi lausn fyrir þá sem vilja skapa sér sérstöðu meðal ferðamanna, eða útbúa einstaka aðstöðu til eigin nota, sem gestahús, lítið sumarhús, gufubað eða geymslu. Við útvegum allar teikningar, getum séð um nauðsynlega vinnu íslenskra hönnuða og aðstoðað við byggingarleyfisumsókn.
REVONIA OÜ er samstarfsaðili JARÐHÚS í framleiðslu og uppsetningu á steyptum módúlum. Revonia hefur yfir 10 ára reynslu af þróun og framleiðslu þessara lausna og hefur náð miklum árangri í sölu gistieininga í ferðaþjónustu, þar sem sóst er eftir einstakri upplifun. Framleiðslan fylgir ISO9001 gæðastaðlinum og einingarnar uppfylla einnig íslenska byggingarreglugerð að öllu leyti.
Steyptar módúl-einingar er hægt að setja saman á marga vegu – hafðu samband til að ræða þínar hugmyndir.
SAUNA, GUFUBAÐ 4,5
Stærð
4,5 m2
Verð frá (m/vsk.)
kr. 2.490.000
Rými
1
Hönnun
REVONIA OÜ
Einstakt gufubað með hvelfdu lofti. Hvelfð lögun loftsins dreifir gufunni einstaklega vel og steyptur massinn geymir hitann. Upplifun af gufubaði í húsi sem þessu er einstök. Verð á þessum gufubaðs-módúl innifelur innanhússfrágang, handunna setbekki og rafmagnsofn. Hurðin inn í gufubaðið er handunninn. Eins og aðrir jarðhús-módular er gert ráð fyrir að gufubaðið sé grafið inn í landslagið og hulið jarðvegi.
ATH! Fleiri stærðir og útfærslur í boði; 9,7fm – 11,7fm – 16,2fm
JARÐHÚS 10
Stærð
10 m2
Verð frá (m/vsk.)
kr. 5.990.000 (599þkr.fm.)
Svefnpláss
2
Hönnun
REVONIA OÜ
Þetta módúl-jarðhús er 10fm að stærð. Svefnrými og salerni er haganlega komið fyrir í einni einstaklega orkunýtinni módúleiningu. Eins og í öðrum módúlum af þessari gerð er ein hliðin algerlega opin fyrir dagsbirtu og útsýni. Þegar húsið hefur verið hulið jarðvegi hverfur það fullkomlega inn í landslagið. Innandyra eru öll þægindi fyrir tvo gesti. Þetta er fullkomið sem útleigueining, heimaskrifstofa eða sem hluti af stærri gistiaðstöðu. Húsið er afhent fullinnréttað. Við útvegum allar verkfræði- og burðarteikningar.
JARÐHÚS 20
Stærð
20 m2
Verð frá (m/vsk.)
kr. 9.700.000 (485þkr.fm.)
Svefnpláss
2-4
Hönnun
REVONIA OÜ
Þessi gistieining samanstendur af tveimur samtengdum módúleiningum. Herbergin tvö gera kleift að fullnýta húsið sem fullbúna gistieiningu fyrir 2-4 manna fjölskyldu. Einingarnar eru skipulagðar með eldhúsi og setustofu í annarri einingunni og sér svefnherbergi í hinni. Vegna þess hversu vel einingarnar eru búnar, henta þessir módúlar vel sem útleigueiningar. Mikil lofthæð, hvelfd þök og að húsin eru hulin jarðvegi gera þessa gistingu að einstakri upplifun. Húsið er afhent fullinnréttað.
JARÐHÚS 30
Stærð
30 m2
Verð frá (m/vsk.)
kr. 13.300.000 (443þkr.fm)
Svefnpláss
4
Hönnun
REVONIA OÜ
Þetta 30fm jarðhús leynir á sér! Hér hefur öllum þægindum lítillar ibúðar verið komið haganlega fyrir. Tvö svefnherbergi, stórir gluggar og hvelfd þök. Hljóðvistin er einstök og orkunýting þessara húsa á sér engan líka. Einfaldleiki og þægindi – húsið hverfur hljóðlega inn í landslagið. Innréttingar eru einstaklega hagkvæmar og smekklegar. og Tilvalið fyrir þá sem leita að sérstöðu og einfaldleika án þess að skerða þægindi. Húsið er afhent fullinnréttað. Hægt er að raða módúlum saman á marga vegu til að ná fram óskum kaupenda. Í húsinu geta verið tvö svefnherbergi, eða eitt herbergi og baðherbergi/sauna í hinum helmngnum. Skoðaðu myndirnar til að sjá dæmi um útfærslur. Við útvegum allar verkfræði- og burðarteikningar.
JARÐHÚS 40
Stærð
40 m2
Verð frá (m/vsk.)
kr. 17.800.000 (445þkr. fm.)
Svefnpláss
2-4
Hönnun
REVONIA OÜ
Þessi gistieining samanstendur af fjórum samtengdum módúleiningum – sem gefur möguleika á að gefa hverri einingu sitt hlutverk og auka þannig rýmið og þægindin. Þetta er fullbúin gistieiningu fyrir að minnsta kosti 4. Vegna þess hversu vel einingarnar eru búnar, henta þessir módúlar vel sem útleigueiningar. Mikil lofthæð, hvelfd þök og að húsin eru hulin jarðvegi gera þessa gistingu að einstakri upplifun. Húsið er afhent fullinnréttað. Hafðu samband við að ræða útfærslu sem hentar þínum þörfum.

MINI
- 10 m² einstök gistieining.
- Fullkomin fyrir styttri dvöl.
- Fullbúin eining á steyptri plötu.
- Steypt hús – mjög viðhaldslétt!
- Með Focus eða Relax innréttingu.
- BÆKLNGUR HÉR !
Verð frá 7,8 mkr. m/vsk.
(780þkr.pr.fm)

OPEN
- 10 m² gistirými með auka glugga.
- Tilvalið sem gestarými.
- Í garðinn eða við sumarhúsið.
- Fullbúin eining á steyptri plötu.
- Með Focus eða Relax innréttingu.
- BÆKLINGUR HÉR !
Verð frá 7,8 mkr. m/vsk.
(780þkr.pr.fm.)

PLUS
- 20 m² þægindi í vel hönnuðu rými.
- Allt fyrir daglegar athafnir.
- Hannað sem sjálfstætt smáhýsi.
- Tveir inngangar og auka gluggi
- Samanstendur af tveimur fullbúnum einingum á steypri plötu.
- BÆKLINGUR HÉR !
Verð frá 13,8 mkr. m/vsk.
(690þkr.pr.fm.)



MINI
- 10 m² of private space
- Perfect for short stays
- Designed for compact spaces
- Open floor to ceiling entrance
- With a focus or a relax interior
39.900 €
(VAT Not included)



OPEN
- 10 m² of light filled space
- Ideal way to create additional space
- Designed for gardens and backyards
- Entrance door and a window combo
- With a focus or a relax interior
39.900 €
(VAT Not included)



PLUS
- 20 m² of comfort focused space
- Perfect for everyday living
- Designed as a standalone house
- Two entrances with an extra window
- With a focus or a relax interior
69.900 €
(VAT Not included)
